01.04.17 - 11:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bandarískur vinstri bakvörður í Breiðablik (Staðfest)

Blikar að styrkja sig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar að styrkja sig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalið Breiðabliks, sem ætlar að vera í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn í sumar, er búið að styrkja sig.
Samantha Jane Lofton, bandarískur vinstri bakvörður, sem lék síðast í Svíðþjóð er gengin í raðir félagsins.
Samantha Jane Lofton, bandarískur vinstri bakvörður, sem lék síðast í Svíðþjóð er gengin í raðir félagsins.
Lofton, sem er 25 ára gömul, hefur einnig verið á mála hjá Boston Breakers og Portland Thorns í Bandaríkjunum. Íslenska landsliðkonan Dagný Brynjarsdóttir er á mála hjá Portland-liðinu.
Henni er ætlað að leysa Hallberu Guðný Gísladóttur af hólmi hjá Blikum. Hallbera, sem er landsliðskona, fór til sænska liðsins Djurgården í desember síðastliðnum.
Lofton er strax komin leikheimild og gæti mögulega spilað þegar Blikar mæta ÍBV í undanúrslitum Lengjubikarsins í dag.