16.11.26 - 17:24
Brynjar Ingi Erluson
Móðir Ronaldo: Mjög ánægð með að Portúgal skyldi tapa

Dolores og Cristiano Ronaldo

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Dolores og Cristiano Ronaldo

Mynd: EPA
Dolores Aveiro, móðir portúgölsku goðsagnarinnar Cristiano Ronaldo, segist hafa verið ánægð með að sjá portúgalska landsliðið tapa 4-1 fyrir Dönum í Þjóðadeildinni í Braga um helgina.

TENGT EFNI
Ronaldo hættur með landsliðinu (Staðfest)
Portúgal er að spila sitt fyrsta landsliðsverkefni síðan Ronaldo lagði landsliðsskóna á hilluna, en hann tók þá ákvörðun eftir að Jorge Jesus, þjálfari liðsins, sveik loforð sem hann hafði gefið honum.
Ronaldo gat ekki hugsað sér að snúa aftur eftir það sem hann taldi vera svik og ákvað því að láta gott heita með landsliðinu.
Móðir hans hefur alla tíð verið einn dyggasti stuðningsmaður sonar síns og leyndi því ekki að hún gladdist yfir tapinu gegn Dönum.
„Ronaldo er leiður og óskar þess að hlutirnir hefðu farið öðruvísi. Hann var líka leiður yfir því að loforðin skyldu hafa verið svikin og ég er það líka. Nú töpuðu þeir í Braga og áttu það skilið. Ég var mjög ánægð með að Portúgal skyldi tapa.“
„Þeir sýndu Cristiano ekki þá virðingu sem hann á skilið og mér líkaði ekki hvernig hann var heiðraður í Braga. Það á að heiðra hann þegar hann er sjálfur á staðnum, ekki í fjarveru hans. Sporting mun heiðra hann almennilega,“ sagði hún í viðtalinu.
Dolores var síðan spurð hvernig sambandið milli Ronaldo og Jesus væri í dag eftir það sem gengið hefur á undanfarinn mánuð. Hún var stuttorð í svari sínu.
„Það er bara eins og samband mitt við hann,“ sagði Dolores í lokin.