Fotbolti.net
01.04.17 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Einar í þjálfarateymi Hamars (Staðfest)

Einar Ólafsson og Liam Killa.

Einar Ólafsson og Liam Killa.

Canon

Mynd: Hamar

Hamar í Hveragerði hefur áðið Einar Ólafsson inn í þjálfarateymið fyrir komandi átök í 4. deildinni í sumar.
Einar mun starfa sem þjálfari hjá Hamri ásamt Liam Killa sem var ráðinn þjálfari liðsins síðastliðið haust. Liam mun halda áfram sem spilandi þjálfari liðsins.

„Einar er gríðarlega reyndur og vel menntaður þjálfari sem hefur náð mjög góðum árangri með þeim liðum sem hann hefur þjálfað. Einar hefur starfað í mörg ár fyrir Breiðablik og Val þar sem hann á marga íslandsmeistaratitla að baki,\" segir á vef Hamars.

„Einar útskrifaðist 2009 sem íþróttafræðingur auk þess sem hann er með UEFA A gráðu í þjálfun. Það er því klárlega happafengur fyrir knattspyrnudeild að fá slíkann reynslubolta til liðs við sig. Hann mun miðla reynslu sinni til leikmanna, auk þess sem hinn ungi og efnilegi þjálfari Liam Killa mun njóta góðs af honum.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.