50 leikmenn eru skráðir í fyrsta Íslandsmótið í eFótbolta í FIFA, en mótið hefst í dag, miðvikudaginn 1. apríl.
Leikið verður í átta riðlum og verða sex leikmenn í hverjum riðli, en sjö í riðli 1 og 2.
Tveir efstu í hverjum riðli fara svo í milliriðla þar sem leikið verður um sæti í undanúrslitum.
Á meðal þeirra sem taka þátt í mótinu er Heiðar Ægisson, leikmaður Stjörnunnar í Pepsi Max-deildinni.
Nánar má lesa um mótið á vef KSÍ
Hér að neðan má sjá þátttakendur og riðlaskiptingu.
Athugasemdir