01.04.22 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Baldur Sig í Völsung (Staðfest) - Smalinn snýr heim

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldur Sigurðsson, smalinn eins og hann er gjarnan kallaður, er genginn í raðir Völsungs og mun klæðast grænu í sumar. Mývetningurinn verður 36 ára seinna í þessum mánuði og snýr aftur í grænt eftir átján tímabil annars staðar.
„Baldur og knattspyrnuráð voru sammála um að ferlinum yrði ekki hægt að ljúka án þess að ná nokkrum leikjum í grænu!" segir í tilkynningu Græna hersins á Facebook.
Baldur lék með Fjölni í Lengjudeildinni í fyrra en þar á undan lék hann með FH, Stjörnunni, SönderjyskE, KR, Bryne og Keflavík.
Baldur hefur tvisvar sinnum á sínum ferli orðið Íslandsmeistari og fimm sinnum bikarmeistari.
„Við bjóðum Baldur Sigurðsson hjartanlega velkominn í grænt á ný!" segir í færslu Græna hersins.