Fotbolti.net
01.04.22 - 09:17
Elvar Geir Magnússon

Bruno skrifar undir nýjan samning við Man Utd (Staðfest)

Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United.

Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United.

Canon

Mynd: Getty Images

Bruno Fernandes hefur skrifað undir nýjan samning við Manchester United sem gildir til júní 2026. Hann er með möguleika á árs framlengingu.
Bruno hefur verið lykilmaður hjá Manchester United síðan hann gekk í raðir félagsins í janúar 2020, hefur skorað 49 mörk og átt 39 stoðsendingar í 117 leikjum fyrir félagið.

Portúgalski miðjumaðurinn hefur tvívegis unnið Sir Matt Busby verðlaunin sem leikmaður ársins hjá United.

„Frá þeirri stundu sem ég gekk í raðir Manchester United hef ég átt sérstakt samband við félagið og stuðningsmenn. Ég ólst upp við að horfa á þetta lið spila og dreymdi um að öðlast þann heiður að spila fyrir það einn daginn. Sá draumur er raunveruleiki í dag," segir Bruno.

„Eftir tveggja ára veru hér þá er enn ótrúleg tilfinning að stíga út á Old Trafford, heyra stuðningsmenn syngja um mig og skora fyrir framan Stretford End. Það eru forréttindi að klæðast þessari treyju og berjast fyrir okkar magnaða félag."

„Við höfum átt nokkrar mjög góðar stundir saman en það besta á enn eftir að koma, bæði frá mér sjálfum og þessu liði."
Bruno skrifar undir nýjan samning við Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.