Fotbolti.net
01.04.22 - 11:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

KA fær úkraínskan miðvörð á láni (Staðfest)

KA fær úkraínskan miðvörð á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: KA

KA hefur fengið til sín úkraínskan miðvörð, sá heitir Oleksiy Bykov.

Bykov er á mála hjá Mariupol sem leikur í efstu deild í heimalandinu. Hann lék fyrri hluta vetrarins á láni hjá Búlgarska liðinu Lokomotiv Plovdiv þar sem hann lék 15 deildarleiki auk þess að spila þrjá leiki í undankeppni Sambandsdeild UEFA.
Oleksiy sem er nýorðinn 24 ára er 186 cm á hæð hóf ferilinn hjá stórliði Shakhtar Donetsk en gekk til liðs við Mariupol árið 2018 þar sem hann hefur verið síðan.

Hann lék á sínum tíma átta leiki fyrir U21 árs landslið Úkraínu.

Mikkel Qvist ákvað að fara í Breiðablik í vetur og þá fór Brynjar Ingi Bjarnason í atvinnumennsku síðasta sumar. Haukur Heiðar Hauksson lagði skóna á hilluna og Dusan Brkovic byrjar tímabilið í þriggja leikja banni. KA menn hafa verið í leit að miðverði og sú leit hefur núna skilið árangri.

Heimild: KA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.