Fotbolti.net
01.04.22 - 17:50
Elvar Geir Magnússon

Killian Colombie í Fjölni (Staðfest)

Killian Colombie í Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Baldvin Berndsen

Frakkinn Killian Colombie er genginn í raðir Fjölnis. Hann skoraði nýlega fyrir Grafarvogsliðið í æfingaleik gegn KV.

Colombie er 26 ára og var síðast hjá enska utandeildarliðinu Lewes FC og var þar á undan hjá Aldershot Town og hjá liðum í Bandaríkjunum.

Á sínum tíma var hann í unglingastarfi Paris Saint-Germain.
Colombie er sókndjarfur hægri bakvörður og kemur til móts við Fjölnisliðið í æfingaferð liðsins á Spáni 2. apríl.

Fjölnir hafnaði í þriðja sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.