01.04.22 - 18:41
Victor Pálsson
Lyon vann baráttuna um Tete (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Lyon í Frakklandi hefur tryggt sér þjónustu Brasilíumannsins Tete en hann kemur til liðsins frá Shakhtar Donetsk.
Tete eins og aðrir leikmenn í Úkraínu hafa fengið leyfi frá FIFA og UEFA að færa sig um set eftir innrás Rússlands inn í landið.
Tete var á óskalista Everton, West Ham og Southampton en það voru frönsku risarnir sem tryggðu sér hans þjónustu að lokum.
Um er að ræða 22 ára gamlan sóknarsinnaðan miðjumann sem gerir lánssamning við Lyon sem rennur út þann 30. júní.
Tete hefur leikið með Shakhtar undanfarin þrjú ár og hefur skorað 25 deildarmörk í 75 leikjum.
Hann á eftir að leika landslið fyrir A-landslið Brasilíu en hefur verið hluti af U23 liðinu.
