Fotbolti.net
01.05.14 - 14:39
Magnús Már Einarsson

Aron Ýmir í Þrótt (Staðfest)

Aron í leik með Þrótti í fyrra.

Aron í leik með Þrótti í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur hefur fengið bakvörðinn Aron Ými Pétursson til liðs við sig frá ÍA.

Aron Ýmir var í láni hjá Þrótturum síðari hlutann á síðasta tímabili en hann mun nú ganga alfarið í raðir félagsins.
,,Knattspyrnufélag ÍA og Aron Ýmir Pétursson hafa komist að samkomulagi um starfslok hans hjá félaginu,\" segir á heimasíðu ÍA.

,,KFÍA hefur samþykkt tilboð frá Þrótti R. í leikmanninn og mun Aron ganga í þeirra raðir og leika með þeim í sumar.\"

,,KFÍA þakkar Aroni fyrir hans framlag fyrir ÍA og óskar honum velfarnaðar hjá nýju félagi.\"


Aron Ýmir er 24 ára gamall en hann hefur leikið með ÍA allan sinn feril fyrir utan síðari hlutann í fyrra.

Heimild: Heimasíða ÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.