01.05.14 - 14:48
Magnús Már Einarsson
Sigurður Jónsson tekur við Kára (Staðfest)

Mynd: Guðmundur Svansson

Mynd: Guðmundur Svansson
Sigurður Jónsson hefur tekið við sem þjálfari Kára á Akranesi en hann mun stýra liðinu í 4. deildinni í sumar.
Í dag var gengið frá samningi um að Kári og ÍA fari í samstarf þar sem 2. flokks leikmenn félagsins geti spilað með liði Kára í 4. deildinni.

,,Sigurður kemur til með að þjálfa lið Kára í sumar auk þess að hjálpa leikmönnum 2. flokks að stíga sín fyrst skref í meistaraflokksbolta. Hann mun auk þess kom til með að vinna með afrekshóp Knattspyrnufélags ÍA sem inniheldur efnilegustu leikmenn félagsins,\" segir á heimasíðu ÍA.
,,Knattspyrnufélag ÍA fagnar endurkomu Sigurðar á Akranes og mun njóta góðs af hans gífurlegu reynslu. Sigurður Jónsson er einn sigursælasti leikmaður ÍA í sögunni og hefur víðtæka reynslu sem þjálfari hér á landi og í Svíþjóð þar sem hann þjálfaði m.a úrvaldeildarfélagið Djurgarden um tveggja ára skeið.\"
Sigurður er 47 ára gamall en hann þjálfaði FH, Víking R. og Grindavík áður en hann tók við Djurgarden í nóvember 2006. Sigurður þjálfaði Djurgarden í tvö ár en hann stýrði síðar Enköping SK í Svíþjóð áður en hann flutti heim til Íslands í vetur.
Á sínum tíma lék Sigurður 65 leiki með íslenska landsliðinu en hann var atvinnumaður erlendis hjá liðum eins og Arsenal, Sheffield Wednesday og Dundee.

Heimild: Heimasíða ÍA