01.05.14 - 13:10
Magnús Már Einarsson
Tryggvi Guðmundsson í KFS (Staðfest)

Tryggvi í leik með HK í fyrrasumar.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Tryggvi Guðmundsson hefur gengið til liðs við KFS en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í dag.
Tryggvi hætti á dögunum hjá HK en hann kom til félagsins frá Fylki um mitt sumar í fyrra. Hann hefur nú ákveðið að leika með Eyjamönnum í 4. deildinni í sumar.

,,Eyjahjartað slær. ÍBV var ekki option og þá er það bara hitt liðið,\" sagði Tryggvi við Fótbolta.net í dag.
Tryggvi mun spila sinn fyrsta leik með KFS þegar liðið fær Gróttu í heimsókn í 1. umferð Borgunarbikarsins á laugardag.
Tryggvi er markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi á Íslandi en hann lék lengi með uppeldisfélagi sínu ÍBV sem og FH. Þá á hann einnig að baki 42 landsleiki en hann skoraði í þeim tólf mörk.