01.06.14 - 12:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
David Villa farinn frá Atletico Madrid (Staðfest)

David Villa er á leiðinni í MLS deildina

Mynd: Getty Images

David Villa hefur tilkynnt að hann sé farinn frá Atletico Madrid en fastlega má gera ráð fyrir því að hann sé á leiðinni til New York City FC í MLS deildinni í Bandaríkjunum.
New York liðið er dótturfélag Manchester City en það sást til Villa, sem er 32 ára, á hóteli í Manchester og búist var við því að hann var að ganga frá félagsskiptunum.
„Ég gat ekki staðist þetta, þetta er gott bæði fyrir mig og fjölskylduna mína. Þetta snýst um fótbolta og ég verð að taka tilboðinu, sagði Villa á heimasíðu Atletico.
Villa vildi ekki gefa fram hvert hann væri að fara en allt bendir til þess að hann fari til Bandaríkjanna.
Sunday Mirror blaðið greinir frá því í dag að Frank Lampard gæti fylgt Villa yfir hafið en Lampard er samningslaus og Chelsea hefur enn ekki boðið honum nýjann samning.