Fotbolti.net
01.06.22 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Eigendaskipti AC Milan (Staðfest) - Eiga hlut í Liverpool

Eigendaskipti AC Milan (Staðfest) - Eiga hlut í Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan er komið með nýja meirihlutaeigendur eftir að RedBird Capital náði samkomulagi við vogunarsjóðinn Elliott Management um kaup á félaginu. 

Talið er að heildarupphæðin nemi 1,2 milljörðum evra, sem er ótrúlegur gróði á nokkrum árum hjá Elliott Management sem öðlaðist Milan á frábæru verði og gjörsneri gengi félagsins við.

Nýir eigendur Milan, RedBird Capital, eiga rúmlega 10% hlut í Fenway Sports Group, sem er meirihlutaeigandi enska stórveldisins Liverpool FC.

Auk þess á RedBird Capital hlut í hafnaboltaliðinu sögufræga Boston Red Sox, íshokkíliðinu Pittsburgh Penguins og franska knattspyrnufélaginu Toulouse FC.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.