Fotbolti.net
01.07.13 - 15:14
Magnús Már Einarsson

Edda og Ólína í Val (Staðfest)

Edda og Ólína í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Valur

Kvennaboltinn
Edda Garðarsdóttir og Ólína Viðarsdóttir hafa gengið til liðs við Val en þetta kemur fram á Sport.is í dag.

Þær koma til Vals frá Chelsea í Englandi en Fótbolti.net greindi frá því á dögunum að Edda og Ólína væru á heimleið.
,,Þeir lofuðu okkur hinu og þessu og síðan var það kjaftæði. Við stóðum í ströngu við að fá einföldustu hluti í lag og þeir komu aldrei í lag,\" sagði Edda við Fótbolta.net á dögunum um lífið hjá Chelsea.

,,Við erum ekki alveg til í að æfa 1-2 í viku. Það eru nánast allar í fullri vinnu nema landsliðsmennirnir. Það er ein sem bjó í Wales og þurfti að keyra góða fjóra tíma aðra leið til að komast á æfingu svo hún æfði bara einu sinni í viku.\"

Edda og Ólína munu fá leikheimild með Val þegar félagaskiptaglugginn opnar 15. júlí og þær munu því ná allri seinni umferðinni í Pepsi-deild kvenna.

Ólína er í íslenska landsliðshópnum sem er á leið á EM í Svíþjóð en Edda var ekki valin í hópinn.

Sjá einnig:
Edda og Ólína vilja fara frá Chelsea - Æft 1-2 í viku

Heimild: Sport.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.