Fotbolti.net
01.07.13 - 15:23
Magnús Már Einarsson

James Hurst til Crawley Town (Staðfest)

James Hurst til Crawley Town (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Enski bakvörðurinn James Hurst hefur gengið til liðs við Crawley Town í ensku C-deildinni.

Hurst hefur leikið með Val í sumar en í síðustu viku var greint frá því að hann væri á leið aftur til Englands.

Crawley endaði í tíunda sæti í ensku C-deildinni á síðasta tímabili eftir að hafa farið upp um tveir deildir á jafnmörgum árum.
Hinn 21 árs gamli Hurst sló í gegn þegar hann var á láni hjá ÍBV sumarið 2010.

Hann samdi í kjölfarið við WBA og lék sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni gegn Fulham í janúar 2011. Síðan þá hefur hann einnig leikið með Blackpool, Shrewsbury, Chesterfield og Birmingham á láni.

,,Ég var svekktur að spila ekki meira í ensku úrvalsdeildinni en stundum þarftu að taka eitt skref til baka til að komast áfram,\" sagði Hurst.

,,Ég þekki nokkra af strákunum og ég átti góðan tíma á Íslandi svo ég er í fínu standi og hlakka til að byrja að æfa með strákunum á morgun.\"

Hurst mun leika sinn fyrsta leik með Crawley þegar liðið mætir Oakwood í æfingaleik á föstudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.