Fotbolti.net
01.07.13 - 13:06
Elvar Geir Magnússon

Zoran Miljkovic tekinn við Þrótti af Páli (Staðfest)

Páll Einarsson rekinn

Zoran Mijkiovic, til vinstri, spjallar við Milan Stefán Jankovic.

Zoran Mijkiovic, til vinstri, spjallar við Milan Stefán Jankovic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Zoran Miljkovic er tekinn við þjálfun Þróttar af Páli Einarssyni sem var látinn taka pokann sinn. Þetta staðfesti Jón Kaldal, formaður knattspyrnudeildar félagsins, við Fótbolta.net.

Eftir að hafa hafnað í þriðja sæti 1. deildarinnar í fyrra hefur lítið gengið hjá Þrótturum í sumar og liðið er aðeins með fimm stig og situr í fallsæti.
„Hann mun koma inn í sumar og fram á haust en það er gagnkvæmur vilji að gera samning við hann til lengri tíma ef menn eru ánægðir með samstarfið,\" segir Jón Kaldal en lengra viðtal við hann verður birt hér á Fótbolta.net á eftir.

Tikynning frá Þrótti:
Zoran Miljkovic hefur verið skipaður þjálfari karlaliðs Þróttar. Páll Einarsson hefur látið af störfum. Páll var þjálfari Þróttar í tæp fjögur ár, var ráðinn haustið 2009, og hefur aðeins Ásgeir Elíasson þjálfað Þrótt lengur. Páll er jafnframt einn af leikjahæstu leikmönnum félagsins. Páli eru þökkuð góð störf fyrir Þrótt.

Zoran Miljkovic kemur frá Serbíu en hefur komið við sögu í íslenskri knattspyrnu frá 1994. Hann kom fyrst til landsins til að leika með ÍA og vann til ýmissa titla með félaginu. Síðar lék hann með ÍBV og Víkingi Reykjavík. Zoran hefur þjálfað Selfoss og Leikni í Reykjavík með góðum árangri.
Páll Einarsson hefur látið af störfum hjá Þrótti.

Páll Einarsson hefur látið af störfum hjá Þrótti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.