01.07.14 - 10:03
Magnús Már Einarsson
Adam Lallana til Liverpool (Staðfest)

Lallana komin í treyju Liverpool.

Mynd: Liverpool

Lallana komin í treyju Liverpool.

Mynd: Liverpool
Liverpool hefur keypt miðjumanninn Adam Lallana frá Southampton en talið er að kaupverðið sé í kringum 25 milljónir punda.
Lallana hefur skrifað undir langtíma samning við Liverpool en hann mun leika í treyju númer 20 hjá félaginu.

,,Ég er spenntur fyrir þessum nýja kafla á ferli mínum, að ganga til liðs við sérstakt félag eins og Liverpool,\" sagði Lallana.
,,Á síðasta tímabili hugsaði ég með mér að ég myndi vonandi fá að spila einn daginn með þessu liði. Sá draumur hefur nú orðið að veruleika.\"
,,Ósk mín hefur ræst um að spila með frábæru félagi í Meistaradeildinni og berjast um titla.\"
Hinn 26 ára gamli Lallana var frábær í liði Southampton á síðasta tímabili en hann vann sér sæti í enska landsliðinu og spilaði á HM í Brasilíu.
Lallana er annar leikmaðurinn sem fer frá Southampton til Liverpool í sumar en RIckie Lambert fór sömu leið í maí.