Fotbolti.net
01.07.14 - 17:45
Elvar Geir Magnússon

Michael Laudrup tekinn við Lekhwiya (Staðfest)

Michael Laudrup.

Michael Laudrup.

Canon

Mynd: Getty Images

Michael Laudrup er tekinn við þjálfun Lekhwiya í Katar en þessi fyrrum stjarna Barcelona og stjóri Swansea segir að þetta gæti orðið hans síðasta þjálfarastarf.

Lekhwiya er meistari í Katar og skrifaði Laudrup undir eins árs samning.
Laudrup er fyrrum miðjumaður danska landsliðsins.

„Ég er að fara í minn síðasta kafla sem þjálfari. Hvort Lekhwiya verður mitt síðasta eða næst síðasta lið á bara eftir að koma í ljós,\" segir Laudrup.

Hann hefur unnið einn stóran titil á stjóraferlinum, deildabikarinn með Swansea, en hann var svo rekinn frá félaginu ári síðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.