Fotbolti.net
01.07.14 - 12:00
Eyþór Ernir Oddsson

Robert Snodgrass til Hull (Staðfest)

Snodgrass í leik með Norwich gegn Arsenal

Snodgrass í leik með Norwich gegn Arsenal

Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur styrkt sig fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni, en þeir hafa keypt Robert Snodgrass frá Norwich City, sem féllu úr ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni.

Robert Snodgrass, sem er 26 ára gamall kantmaður kemur til liðsins á 7 milljónir punda, en þetta eru önnur kaup Hull á leiktíðinni, sem keypti Jake Livermore frá Tottenham á 8 milljónir punda á dögunum.
,,Eftir að hafa talað við eigendur og knattspyrnustjóran og að hafa fengið að sjá plön þeirra, þá var ég til í að vera hluti af því,\" sagði Snodgrass.

,,Eftir að kaupverðið var samþykkt milli þessarra tveggja liða gerðist þetta allt mjög hratt og allt sem klúbburinn hefur gert til að klára þennan samning er ótrúlegt.\"

,,Þetta er byrjunin á nýjum kafla fyrir mig og fjölskyldu mína og ég get ekki beðið eftir því að byrja núna.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.