Fotbolti.net
01.07.14 - 13:14
Magnús Már Einarsson

Roy Keane ráðinn aðstoðarstjóri Aston Villa (Staðfest)

Roy Keane (til hægri).

Roy Keane (til hægri).

Canon

Mynd: Getty Images

Roy Keane hefur verið ráðinn aðstoðarstjóri hjá Aston Villa en hann mun vera aðstoðarmaður knattspyrnustjórans Paul Lambert.
,,Ég hlakka mikið til að vinna með honum og er ánægður með að hann sé mættur hingað,\" sagði Lambert.

Keane var í fyrra ráðinn aðstoðarþjálfari írska landsliðsins en hann mun halda því starfi áfram samhliða starfinu hjá Aston Villa.

,,Ég er ánægður með að ganga í raðir Aston Villa og hlakka til að takast á við spennandi verkefni,\" sagði Keane.

Hinn 42 ára gamli Keane var sigursæll leikmaður hjá Manchester United en hann var knattspyrnustjóri Sunderland frá 2006 til 2008 og síðar Ipswich frá 2009 til 2011.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.