01.07.14 - 22:10
Brynjar Ingi Erluson
Siem de Jong til Newcastle United (Staðfest)

Siem de Jong í leik með Ajax

Mynd: Getty Images

Siem de Jong í leik með Ajax

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle United tilkynnti í kvöld að félagið væri búið að festa kaup á Siem de Jong frá Ajax.
De Jong, sem er 25 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður, hefur verið fyrirliði hollenska meistaraliðsins síðustu tvö ár en hann hefur verið félaginu afar mikilvægur.
Newcastle hefur verið í viðræðum við De Jong og Ajax undanfarnar vikur og staðfesti enska liðið í kvöld að hann væri kominn til félagsins.
Hann lék 168 leiki með Ajax í hollensku deildinni og skoraði í þeim 57 mörk.
De Jong hefur þá leikið sex landsleiki fyrir hollenska landsliðsins og skorað tvö mörk en hann er þó ekki með liðinu á HM.