Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 01. júlí 2019 15:15
Magnús Már Einarsson
Aston Villa kaupir Targett (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur keypt vinstri bakvörðinn Matt Targett frá Southampton.

Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en það er talið vera í kringum ellefu milljónir punda.

Hinn 23 ára gamli Targett er uppalinn hjá Southampton en hann mun nú leika með nýliðum Aston Villa á komandi tímabili.

Targett er fimmti leikmaðurinn sem Aston Villa krækir í fyrir komandi tímabil en áður höfðu Anwar El Ghazi, Kortney Hause, Jota og Wesley skrifað undir hjá félaginu.

Athugasemdir
banner
banner
banner