Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 01. júlí 2019 16:08
Elvar Geir Magnússon
Chelsea kaupir Kovacic (Staðfest)
Mateo Kovacic.
Mateo Kovacic.
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur formlega keypt Mateo Kovacic frá Real Madrid.

Þessi 25 ára Króati var á láni á Stamford Bridge á síðasta tímabili en hann hefur nú gert fimm ára samning við Chelsea.

„Ég naut fyrsta tímabils míns hjá Chelsea. Mér líður vel hjá félaginu og kann vel við mig í London og í ensku úrvalsdeildinni. Ég er mjög ánægður með að vera alfarið orðinn leikmaður Chelsea," segir Kovacic.

„Við áttum gott tímabil, unnum Evrópudeildina, og ég vona að ég geti lagt mitt af mörkum til að áframhaldandi árangur náist."

Frank Lampard er í viðræðum við Chelsea um að taka við stjórnartaumunum á Brúnni eftir að Maurizio Sarri var ráðinn til Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner