Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. júlí 2019 11:00
Magnús Már Einarsson
Denis Suarez til Celta Vigo (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Celta Vigo hefur keypt miðjumanninn Denis Suarez frá Barcleona á 12,9 milljónir evra eða 11,5 milljónir punda.

Kaupverðið gæti hækkað um 3,1 milljón evra ef Suarez stendur sig vel hjá Celta.

Suarez ólst upp hjá Celta en 17 ára gamall gekk hann í raðir Manchester City.

Hinn 25 ára gamli Suarez spilaði aldrei með aðalliði City en hann fór í varalið Barcelona árið 2013 áður en hann fór til Sevilla og Villarreal á láni.

Suarez komst síðar í aðallið Barcelona en síðari hlutann á síðasta tímabili var hann í láni hjá Arsenal þar sem hann lét lítið að sér kveða.
Athugasemdir
banner
banner