Leeds hefur tryggt sér þjónustu Jack Harrison og Ben White á láni út komandi tímabil.
Harrison er 22 ára gamall kantmaður en hann kemur á láni frá Manchester City.
Harrison var líka á láni hjá Leeds á síðasta tímabili en hann skoraði fjögur mörk og lagði upp þrjú í 37 leikjum.
Harrison er 22 ára gamall kantmaður en hann kemur á láni frá Manchester City.
Harrison var líka á láni hjá Leeds á síðasta tímabili en hann skoraði fjögur mörk og lagði upp þrjú í 37 leikjum.
White er 21 árs gamall miðvörður en hann kemur á láni frá Brighton eftir að hafa verið á láni hjá Newport County og Peterborough síðustu tvö tímabil.
Marcelo Bielsa er áfram við stjórnvölinn hjá Leeds og mun gera aðra atlögu að því að koma liðinu upp í ensku úrvalsdeildina. Leeds var lengi á toppnum í Championship síðastliðinn vetur en missti flugið þegar líða tók á tímabilið.
Athugasemdir