Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. júlí 2020 13:28
Hafliði Breiðfjörð
Mackenzie Heaney á láni til Grindavíkur (Staðfest)
Mackenzie Heaney er mættur í Grindavík.
Mackenzie Heaney er mættur í Grindavík.
Mynd: Grindavík
Grindavík hefur fengið Englendinginn Mackenzie Heaney á láni frá enska liðinu Whitby Town. Mackenzie Heaney er 21 árs framliggjandi miðjumaður sem getur einnig leikið á kantinum. Hann kom til reynslu til Grindavíkur í síðustu viku og hreif þjálfara liðins og forráðamenn með færni sinni. Hann er með öflugan vinstri fót og er góður skotmaður.

Heaney kemur úr unglingaakademíu Newcastle United og lék yngri liðum Newcastle við góðan orðstír. Hann ólst upp með Longstaff bræðrum sem í dag leika báðir með aðalliði Newcastle.

Heaney á að baki leiki með U17 ára landsliði Englands en hefur einnig verið valinn í yngri landslið Skotlands. Heaney þótti gríðarlega efnilegur hjá Newcastle en lenti í mjög erfiðum meiðslum á öxl og náði ekki að vinna sér inn áframhaldandi samning hjá úrvalsdeildarfélaginu í Englandi. Hann gerði nýverið samning við enska liðið Whitby Town sem hefur nú lánað leikmanninn til Grindavíkur í sumar.

Það voru skemmtilegir endurfundir á fyrstu æfingu Heaney með Grindavík þegar hann hitti Hilmar McShane sem hann lék með hjá yngri landsliðum Skotlands fyrir nokkrum árum. Lítill heimur.
Athugasemdir
banner
banner
banner