Fimm stuðningsmenn Liverpool hafa merkt sig sem Englandsmeistara í símaskrá á ja.is eftir að liðið varð enskur meistari í síðustu viku.
Davíð Már Sigurðsson, Ólafur Ingvar Guðfinnsson og Styrmir Gíslason hafa allir merkt sig „Englandsmeistari 2020".
Þá hafa Eiríkur Már Rúnarsson og Kristinn Harðarson merkt sig „heims- evrópu og englandsmeistari" en Liverpool er núverandi meistari allra þessara titla.
„Það hefur verið brjálað að gera hjá ja.is að uppfæra titla hjá mönnum," sagði Sigursteinn Brynjólfsson í Innkastinu í dag.
Hér að neðan má hlusta á enska Innkastið.
Athugasemdir