Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 01. júlí 2020 16:27
Magnús Már Einarsson
Saka framlengir við Arsenal
Mynd: Getty Images
Bukayo Saka hefur skrifað undir nýjan langtíma samning við Arsenal en félagið staðfesti þetta í dag.

Hinn 18 ára gamli Saka hefur komið öflugur inn í aðallið Arsenal á þessu tímabili.

Saka hefur spilað 33 leiki og vakið athygli fyrir góða frammistöðu.

Fyrri samningur hans átti að renna út eftir eitt ár en nú er ljóst að hann verður áfram hjá Arsenal.

„Arsenal er mitt lið. Ég er svo ánægður með að skrifa loksins undir nýjan samning," sagði Saka á Twitter í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner