Fotbolti.net
10.09.26 - 20:07
Brynjar Ingi Erluson

Elías Rafn áfram í bikarnum - Ísak nær úrvalsdeildinni

Ísak Andri lék síðustu mínúturnar með Norrköping

Ísak Andri lék síðustu mínúturnar með Norrköping

Canon

Mynd: IFK Norrköping

Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í Midtjylland eru komnir áfram í 16-liða úrslit danska bikarsins og þá færist Ísak Andri Sigurgeirsson nær sænsku úrvalsdeildinni.
Ísak Andri spilaði síðustu mínúturnar í 2-0 sigri Norrköping á Varberg í sænsku B-deildinni og er því nær úrvalsdeildinni.

Stjörnumaðurinn hefur ekki verið í stóru hlutverki síðan hann sneri aftur til Norrköping frá Viborg en þó fengið mínútur af bekknum.

Liðinu hefur gengið afar vel í sænsku B-deildinni og stefnir hraðbyri aftur upp í úrvalsdeildina, enda með tíu stiga forskot á toppnum þegar sjö umferðir eru eftir.

Elías Rafn og félagar í Midtjylland eru einnig komnir áfram eftir 7-0 stórsigur á Sundby í danska bikarnum og leika því í 16-liða úrslitum. Markvörðurinn fékk hvíld að þessu sinni en var til taks á bekknum.

Erilsamir mánuðir eru framundan hjá Midtjylland, sem er í öðru sæti dönsku deildarinnar með 15 stig, þremur á eftir toppliði FCK. Auk baráttunnar heima fyrir tekur liðið þátt í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.