Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 01. júlí 2022 15:14
Elvar Geir Magnússon
Marseille kaupir Guendouzi (Staðfest)
Mynd: EPA
Franska félagið Marseille hefur keypt miðjumanninn Matteo Guendouzi frá Arsenal eftir vel heppnaða lánsdvöl.

Kaupverðið er 9 milljónir punda en hinn 23 ára Guendouzi spilaði alla 55 leiki Marseille síðasta tímabil og vann sér inn sæti í franska landsliðinu.

Marseille nýtti sér klásúlu um að kaupa leikmanninn.

Guendouzi lék 82 leiki fyrir Arsenal en spilaði sinn síðasta leik fyrir félagið í júní 2020.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner