Fotbolti.net
01.07.26 - 15:53
Kári Snorrason

Enn ein stjóraskiptin í vændum hjá Forest - Glasner sagður taka við

Samningur Pereira við Forest rennur út eftir eitt ár.

Samningur Pereira við Forest rennur út eftir eitt ár.

Canon

Mynd: EPA

Framtíð Vitor Pereira hjá Nottingham Forest virðist vera óljós. Stjörnublaðamaðurinn Fabrizio Romano segir hreyfingar á bak við tjöldin í Skírisskógi og að Pereira gæti verið á förum.

Pereira var fjórði þjálfarinn sem tók við hjá Forest á síðasta tímabili eftir að Nuno Espírito Santo, Ange Postecoglou og Sean Dyche höfðu verið reknir.
Hann var ráðinn til Forest um miðjan febrúar og tókst að stýra liðinu til sigurs í 8 leikjum af 20 í öllum keppnum. Hann bjargaði Forest frá falli og kom liðinu í undanúrslit Evrópudeildarinnar.

Grikkinn Evangelos Marinakis, umdeildur eigandi Forest, þekkir vel til Pereira en hann þjálfaði Olympiakos í Grikklandi, sem er einnig í eigu Marinakis.

Uppfært 15:48
The Telegraph greinir frá því að Oliver Glasner muni taka við sem nýr stjóri liðsins. Pereira er enn í viðræðum við félagið um framtíð sína en er ekki búist við að hann haldi áfram með félagið.

Oliver Glasner lét af störfum sem stjóri Crystal Palace að loknu síðasta tímabili eftir að hafa stýrt félaginu til sigurs í Sambandsdeildinni. Austurríkismaðurinn verður nú fimmti stjóri Forest á aðeins einu ári.

Hætti sem stjóri Palace eftir tímabil.

Hætti sem stjóri Palace eftir tímabil.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.