Fotbolti.net
01.07.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hincapie sá rautt fyrir að hylja munninn

Hincapie í baráttunni í nótt

Hincapie í baráttunni í nótt

Canon

Mynd: EPA

Piero Hincapie, landsliðsmaður Ekvador og leikmaður Arsenal, fékk að líta rauða spjaldið þegar hann huldi munninn þegar hann var ósáttur með leikmann Mexíkó í nótt.

Liðin mættust í 32-liða úrslitum þar sem Mexíkó vann 2-0 og vann leik í útsláttakeppni í fyrsta sinn í 40 ár.
Hincapie var eitthvað pirraður út í Santiago Gimenez, sóknarmann Mexíkó, undir lokin og huldi munninn þegar hann sagði eitthvað við hann.

Gimenez lét dómarann vita og hann fór í skjáinn og gaf Hincapie rautt spjald.

Um nýja reglu er að ræða þar sem leikmenn mega ekki hylja munninn þegar þeir eru að rífast en það er í lagi ef það er á vinalegum nótum.


Hincapie red card against Mexico 90+5'
by
u/977x in
soccer
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.