Fotbolti.net
01.07.26 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Subway

HM í dag - England mætir Kongó

HM í dag - England mætir Kongó
Canon

Mynd: EPA

32-liða úrslitin á HM eru komin á fulla ferð og halda áfram í dag.

England mætir til leiks og spilar á móti Kongó sem hefur komið gríðarlega á óvart. Liðið náði jafntefli gegn Portúgal og tryggði sér sæti í útsláttakeppninni með sigri á Úsbekistan og náði besta árangrinum af liðunum í 3. sæti.

England byrjaði sterkt og vann Króatíu en þá fylgdi jafntefli gegn Gana en liðið lauk riðlakeppninni á sigri gegn Panama.

Þá mætast Belgía og Senegal. Belgía vann G-riðil með fimm stig en Senegal var síðasta liðið inn í 3. sætinu og náði aðeins í þrjú stig í I-riðli.

Bandaríkin og Bosnía mætast síðan á miðnætti. Bandaríkin unnu D-riðil með sex stig en Bosnía endaði í 3. sæti með 4 stig í B-riðli.
miðvikudagur 1. júlí

WORLD: World Cup, 1/16 final
16:00 England - Kongó
20:00 Belgía - Senegal
00:00 Bandaríkin - Bosnía
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.