Fotbolti.net
01.08.13 - 07:00
Magnús Már Einarsson

Francois Dingong í KR (Staðfest)

Francois Dingong í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

KR-ingar hafa fengið markvörðinn Francois Ebenezer Dingong Dingong til liðs við sig.

Dingong hefur verið á reynslu hjá KR-ingum undanfarnar tvær vikur en þessi 18 ára gamli leikmaður kemur frá Kamerún.
Dingong er fæddur árið 1995 og því er hann gjaldgengur í 2. flokki út næsta ár.

Hannes Þór Halldórsson og Rúnar Alex Rúnarsson eru fyrstu tveir markverðir KR en erlent félög hafa sýnt þeim báðum áhuga.

,,Við vitum aldrei hvað gerist með Hannes og Rúnar Alex. Þeir eru báðir eftirsóttir og við verðum að hugsa um framtíðina líka,\" sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR við Fótbolta.net þegar Dingdong kom á reynslu á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.