01.08.13 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Metfjöldi félagaskipta í júlíglugganum

Elfar Freyr fór aftur í Breiðablik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elfar Freyr fór aftur í Breiðablik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Metfjöldi félagaskipta var í félagaskiptaglugganum í júlí á Íslandi en glugginn lokaði á miðnætti.
Félagaskiptagluggarnir hér á landi eru tveir, annars vegar frá 21. febrúar til 15. maí og hinsvegar frá 15. júlí til 31. júlí. Ekki er hægt að hafa félagaskipti innanlands eða til landsins eftir 31. júlí.
Alls voru 377 félagaskipti afgreidd af skrifstofu KSÍ í þessum seinni glugga og hafa ekki verið fleiri síðan mælingar hófust. Flest höfðu þau verið 287 talsins en það var á síðasta ári.
Eins og jafnan þá biðu margir þangað til á síðustu stundu en 100 félagaskipti voru afgreidd síðasta dag félagaskipta.
Sjá einnig:
Smelltu hér til að sjá (Staðfest) félagaskipti