Fotbolti.net
01.08.13 - 10:28
Magnús Már Einarsson

Sölvi Geir til Ural (Staðfest)

Sölvi Geir til Ural (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Sölvi Geir Ottesen hefur gengið itl liðs við rússneska félagið FC Ural en þetta kemur fram á Vísi.is.

Sölvi Geir skrifaði undir tveggja ára samning við Ural.
Samningur Sölva við FC Kaupmannahöfn rann út á dögunum og hann hefur verið án félags síðan þá.

Ural er í næstneðsta sæti í rússnesku úrvalsdeildinni eftir þrjár umferðir þar í landi en liðið komst upp í deildina með því að vinna 1. deildina á síðasta tímabili.

Næsti leikur Ural er gegn Tom Tomsk á laugardag og Sölvi gæti mögulega spilað sinn fyrsta leik þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.