01.08.13 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Söngvari One Direction til Doncaster (Staðfest)

Louis Tomlinson (til hægri).

Mynd: Getty Images

Louis Tomlinson (til hægri).

Mynd: Getty Images
Louis Tomlinson, söngvari hljómsveitarinnar One Direction, hefur gengið til liðs Doncaster Rovers í ensku Championship deildinni.
Hinn 21 árs gamli Tomlinson mun fá númer í leikmannahópnum en hann mun þó ekki gera formlegan samning við félagið.
Samkvæmt fréttum frá Englandi er líklegt að Tomlinson muni spila einhverja leiki með U21 árs liði Doncaster í vetur.

,,Þetta hefur verið draumur minn síðan í æsku,\" sagði Tomlinson eftir að gengið var frá félagaskiptunum.
Tomlinson hefur á ferli sínum leikið í ensku sunnudagsdeildinni sem er lægsta utandeildin á Englandi.