Fotbolti.net
01.08.14 - 18:00
Eyþór Ernir Oddsson

Bodurov til Fulham (Staðfest)

Bodurov til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nikolay Budorov, leikmaður Litex Lovech er genginn í raðir Fulham.
Bodurov er 28 ára gamall miðvörður, en hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið.

Þetta er níundi leikmaðurinn sem Fulham fær til sín í sumar en þeir senda skýr skilaboð um að þeir ætli sér upp í úrvalsdeildina á nýjan leik eftir að hafa fallið á síðasta tímabili.

Bodurov kemur frá Búlgaríu og á að baki 24 landsleiki með landsliði Búlgaríu.

Heimild: BBC Sport

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.