Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 01. ágúst 2020 17:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Birkir ekki í hóp í lokaleik tímabilsins
Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brescia 1 - 1 Sampdoria
0-0 Fabio Quagliarella ('27 , Misnotað víti)
0-1 Mehdi Leris ('41 )
1-1 Ernesto Torregrossa ('49 , víti)
Rautt spjald: Kristoffer Askildsen, Sampdoria ('90)

Birkir Bjarnason var ekki í leikmannahópi Brescia er liðið gerði jafntefli gegn Sampdoria í fyrsta leik lokaumferðar ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Mehdi Leris kom Sampdoria yfir undir lok fyrri hálfleik, en fyrr í hálfleiknum hafði liðsfélagi hans, Fabio Quagliarella, klúðrað vítaspyrnu.

Snemma í seinni hálfleiknum jafnaði Ernesto Torregrossa fyrir Brescia af vítapunktinum. Sampdoria virtist vera að tryggja sér sigurinn í uppbótartímanum en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Brescia mun leika í B-deild á næstu leiktíð eftir að hafa aðeins náð í 25 stig í 38 leikjum. Samkvæmt Transfermarkt er samningur Birkir út næstu leiktíð og því útlit fyrir að hann verði hjá félaginu í B-deildinni.

Leikir kvöldsins:
18:45 Juventus - Roma (Stöð 2 Sport 2)
18:45 Napoli - Lazio
18:45 Atalanta - Inter (Stöð 2 Sport 3)
18:45 Milan - Cagliari
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner