Sky Sports greinir frá því að tveir lykilmenn Chelsea verði klárir í slaginn fyrir úrslitaleik FA bikarsins gegn Arsenal í dag.
Þeir eru N'Golo Kante sem leikur á miðjunni og brasilíski kantmaðurinn Willian, sem yfirgefur Chelsea á frjálsri sölu eftir tímabilið.
Kante og Willian hafa báðir verið að glíma við meiðsli en Frank Lampard er búinn að staðfesta að þeir verði báðir í leikmannahópi Chelsea á eftir.
„Kante og Willian eru í hópnum en við vitum ekki hvort þeir geti byrjað leikinn. Ruben Loftus-Cheek verður ekki með," sagði Lampard.
Chelsea verður einnig án Billy Gilmour sem er frá vegna meiðsla. Í liði Arsenal eru Shkodran Mustafi, Calum Chambers, Pablo Mari og Gabriel Martinelli frá vegna meiðsla. Hector Bellerin og Bernd Leno eru tæpir.
Athugasemdir