Timo Werner var á vellinum þegar Chelsea tapaði fyrir Arsenal í úrslitaleik enska bikarsins í kvöld. Leikurinn endaði með 2-1 sigri Arsenal þar sem Pierre-Emerick Aubameyang skoraði bæði mörk Arsenal.
Werner er nýgenginn í raðir Chelsea frá RB Leipzig fyrir um 52 milljónir punda. Hann er byrjaður að æfa en ekki spila með félaginu.
Werner er nýgenginn í raðir Chelsea frá RB Leipzig fyrir um 52 milljónir punda. Hann er byrjaður að æfa en ekki spila með félaginu.
Það náðist mynd af honum í stúkunni eftir seinna mark Aubameyang og var hann í símanum.
RB Leipzig, hans fyrrum félag, ákvað að nýta tækifærið og bjóða upp á gott grín með myndinni eins og sjá má hér að neðan.
Brandarahorn í boði RB Leipzig...
— RB Leipzig English (@RBLeipzig_EN) August 1, 2020
Athugasemdir