Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 01. ágúst 2021 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bailey finnst leikstíll Aston Villa spennandi
Mynd: EPA
Aston Villa staðfesti í gær að félagið hafi náð samkomulagi við Bayer Leverkusen um kaup og kjör á Leon Bailey.

Bailey á bara eftir að fara í læknisskoðun og skrifa undir samning við Aston Villa.

Bailey hefur þegar tjáð sig um Aston Villa en hann segist spenntur fyrir leikstíl liðsins, hann minni svolítið á leikstíl Leverkusen.

„Við spiluðum mikið upp kanntana og tókum menn á. Það eru styrkleikarnir hjá mér og Moussa Diaby og það er alltaf gott ef við getum nýtt okkar styrkleika." sagði Bailey um leikstíl Leverkusen

Dean Smith þjálfari Aston Villa vill spila flæðandi sóknarbolta og telur Bailey að það henti honum mjög vel.
Athugasemdir
banner
banner
banner