Russell Martin er orðinn nýr stjóri Swansea í ensku Championship deildinni en ráðningin var staðfest í dag.
Martin hefur verið ofarlega á lista Swansea í dágóðan tíma en MK Dons vildi ekki sleppa honum til að byrja með.
Fyrsta tilraun Swansea að fá Martin mistókst en tókst í seinna skiptið og gerir hann þriggja ára samning.
Swansea borgar 400 þúsund pund til MK Dons fyrir Martin sem tekur með sér eigið þjálfarateymi.
Martin var flottur leikmaður á sínum tíma og var bæði fyrirliði Peterborough og Norwich.
Steve Coppell þjálfaði Swansea á síðustu leiktíð en hann lét af störfum fyrr í sumar.
Athugasemdir