Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 01. ágúst 2021 15:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stuðningsmenn líktu fyrrum leikmanni Everton við Kante
Beni Baningime í leik með Everton
Beni Baningime í leik með Everton
Mynd: EPA
Stuðningsmenn Celtic eru áhyggjufullir eftir tap liðsins gegn Hearts í gær. Þetta var í fyrsta sinn sem Celtic tapar í fyrstu umferð deildarinnar í 24 ár.

Stuðningsmenn Hearts eru hinsvegar hæstánægðir með frammistöðu liðsins.

Stuðningsmennirnir fóru hamförum á Twitter eftir leikinn og tóku þar sérstaklega Beni Baningime fyrir en margir báru hann saman við Ngolo Kante miðjumann Chelsea og franska landsliðsins.

Baningime kom til Hearts frá Everton í sumar en hann lék aðeins 8 leiki fyrir Everton frá árinu 2017. Hann lék undir stjórn Wayne Rooney hjá Derby seinni hluta síðustu leiktíðar.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner