Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 01. ágúst 2022 15:30
Ívan Guðjón Baldursson
Cesc Fabregas til Como (Staðfest)
Mynd: EPA

Ítalska B-deildarfélagið Como er búið að staðfesta félagsskipti Cesc Fabregas til félagsins.


Spænski miðjumaðurinn gerði garðinn fyrst frægan sem táningur hjá Arsenal en hefur síðan þá meðal annars leikið fyrir Barcelona og Chelsea.

Fabregas hefur varið síðustu fjórum árum hjá Mónakó í frönsku deildinni en spilaði aðeins 68 leiki fyrir félagið í heildina, þar af fimm á síðustu leiktíð.

Como endaði í 13. sæti Serie B á síðustu leiktíð með 47 stig úr 38 leikjum. Dennis Wise, fyrrum leikmaður Chelsea og landsliðsmaður Englands, er framkvæmdastjóri Como.


Athugasemdir
banner