01.08.26 - 14:35
Ívan Guðjón Baldursson
Emelía skoraði annan leikinn í röð - Freyja með mark í frumrauninni

Mynd: HB Köge

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: HB Köge

Emelía Óskarsdóttir lék seinni hálfleikinn í þægilegum sigri HB Köge í efstu deild danska boltans í dag og skoraði hún síðasta mark leiksins.
Emelía er 20 ára gömul og er búin að skora tvö mörk í tveimur leikjum á nýju tímabili með HB Köge, sem er ríkjandi meistari í Danmörku. Köge er með sex stig eftir tvær umferðir.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir var þá í byrjunarliði Bröndby sem gerði jafntefli við Nordsjælland og er með tvö stig eftir tvær fyrstu umferðirnar, á meðan Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir lék fyrri hálfleikinn í 2-1 tapi FC Kaupmannahafnar gegn OB. Kaupmannahöfn er án stiga.
Í sænska boltanum skoraði Freyja Stefánsdóttir eina mark Djurgården í tapi gegn Brommapojkarna. Freyja og María Catharína Ólafsdóttir Grós voru saman í byrjunarliði Djurgården, sem er í fallsæti með 8 stig eftir 12 umferðir. Þetta var fyrsti leikur Freyju með sínu nýja félagi en hún er uppalin hjá Víkingi R.
RB Leipzig tapaði þá gegn Wolfsburg en Emilía Kiær Ásgeirsdóttir er á mála hjá Leipzig.
HB Köge 4 - 0 ASA Aarhus
1-0 S. Thygesen ('10)
2-0 C. Paulson ('44)
3-0 K. Carusa ('45)
4-0 Emelía Óskarsdóttir ('92)
Bröndby 1 - 1 Nordsjælland
Odense 2 - 1 Köbenhavn
Leipzig 1 - 3 Wolfsburg
Brommapojkarna 2 - 1 Djurgarden
1-0 I. Bengtsson ('24)
1-1 Freyja Stefánsdóttir ('56)
2-1 V. Blom ('79)