Fotbolti.net
01.08.26 - 11:30
Ívan Guðjón Baldursson

Fyrsti útlendi þjálfari Tékklands - Vann Ólympíuleikana

Fyrsti útlendi þjálfari Tékklands - Vann Ólympíuleikana
Canon

Mynd: EPA

Spánverjinn Santi Denia hefur fengið tveggja ára samning sem landsliðsþjálfari Tékklands eftir að hafa síðast þjálfað Al-Shahaniya í Katar.
Denia er 52 ára gamall og hóf þjálfaraferilinn hjá Atlético Madrid. Hann var aðstoðarþjálfari hjá Atlético og bráðabirgðaþjálfari 2009 áður en hann var ráðinn sem þjálfari U17 landsliðs Spánar.

Hann hélt því starfi í átta ár þar til hann tók við U19 landsliðinu í fjögur ár. 2022 var hann loks ráðinn í þjálfarastarfið hjá U21 landsliðinu eftir að Luis de la Fuente tók við A-landsliðinu.

Denia vann EM U17 ára landsliða 2017 og endaði í öðru sæti á heimsmeistaramótinu sama árið. Hann vann EM 2019 með U19 landsliðinu og 2023 endaði U21 landsliðið í öðru sæti á EM undir hans stjórn.

Hann stýrði U23 landsliði Spánar til gullverðlauna á Ólympíuleikunum 2024 og fær tveggja ára samning hjá Tékklandi, út næsta Evrópumót.

„Ég er mjög ánægður að vera hér og spenntur fyrir þessu verkefni. Það er frábært tækifæri að taka við tékkneska landsliðinu. Þetta er land sem hefur ríka fótboltahefð og það er heiður að taka við Tékklandi," sagði Denia við undirskriftina.

Denia tekur við af Miroslav Koubek sem sagði starfinu lausu eftir að Tékkar voru slegnir út í riðlakeppni heimsmeistaramótsins.
Fyrsti útlendi þjálfari Tékklands - Vann Ólympíuleikana
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.