Fotbolti.net
01.08.26 - 15:23
Ívan Guðjón Baldursson

Joao Pedro fær launahækkun - Nálgast Chavarría

Joao Pedro fær launahækkun - Nálgast Chavarría
Canon

Mynd: EPA

Það eru jákvæðar fréttir úr herbúðum Chelsea í dag þar sem brasilíski sóknarmaðurinn Joao Pedro er búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir nýjum samningi við félagið.
Núverandi samningur Joao Pedro gildir næstu sjö árin en risafélög úr Evrópu hafa spurst fyrir um leikmanninn í sumar.

Chelsea hefur því ákveðið að bjóða Brassanum launahækkun til að halda honum hamingjusömum, enda var Joao Pedro markahæsti leikmaður félagsins á síðustu leiktíð og valinn sem besti leikmaður tímabilsins.

Chelsea er á sama tíma að nálgast samkomulag um kaupverð fyrir bakvörðinn Pep Chavarría sem er ofarlega á óskalista Xabi Alonso.

Chavarría er 28 ára bakvörður Rayo Vallecano. Hann er spænskur en hefur aldrei leikið fyrir landsliðið.

Vallecano hafnaði 15 og 20 milljón evru tilboðum frá Chelsea og benti félaginu á að borga upp riftunarákvæði leikmannsins til að kaupa hann, sem nemur 50 milljónum evra.

Chelsea virðist ekki reiðubúið til að greiða svo háa upphæð en er enn í viðræðum við spænska félagið. Stjórnendur vonast til að ná samkomulagi um að borga á bilinu 30 til 40 milljónir evra fyrir vinstri bakvörðinn, sem er hugsaður sem arftaki fyrir Marc Cucurella.

Nýr kafli hjá Chelsea: Alonso, metkaup og breytt stefna
TENGT EFNI

Nýr kafli hjá Chelsea: Alonso, metkaup og breytt stefna

Joao Pedro fær launahækkun - Nálgast Chavarría
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.