Fotbolti.net
01.08.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Forest kaupir efnilegan miðjumann (Staðfest)

Forest kaupir efnilegan miðjumann (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Nottingham Forest er búið að festa kaup á Gustavo Sá, sem er 21 árs miðjumaður frá Portúgal.
Hann kemur til félagsins úr röðum Famalicao og er lánaður beint til gríska stórveldisins Olympiakos, sem er systurfélag Forest. Bæði félögin eru í eigu Evangelos Marinakis.

Sá er sóknarsinnaður miðjumaður og kom með beinum hætti að 6 mörkum í 32 deildarleikjum á síðustu leiktíð. Hann hefur í heildina komið að 26 mörkum í 108 leikjum í efstu deild í Portúgal þrátt fyrir ungan aldur.

Sá hefur verið mikilvægur hlekkur upp yngri landslið Portúgal og hefur í heildina skorað 12 mörk í 41 landsleik. Hann gæti því reynst mikilvægur leikmaður fyrir Forest í framtíðinni, en það verður áhugavert að sjá hvernig hann fótar sig í efstu deild gríska boltans.

Talið er að Forest borgi um 20 milljónir evra til að kaupa Sá og heldur Famalicao hluta af endursöluvirði leikmannsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.